<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Ég kann að hjóla! 

Jamm og jæja ég kann að hjóla :) Það hefur verið frekar erfitt að læra að hjóla án hjálpardekkjanna en loksins kom það. Ég hef verið að æfa mig svona öðru hvoru en svo bara allt í einu var þetta ekkert mál. Nú hjóla ég hring eftir hring um leiksvæðið með Friðriki Daða vini mínum.

.... en ég er ekki enn farin að missa neina tönn. Ég spurði mömmu um daginn þegar við vorum að bursta hvort ég mætti ekki bara hætta að bursta tennurnar, því eins og allir vita detta tennurnar úr manni ef maður burstar ekki vel. Tillagan var ekki samþykkt þannig að ég verð bara enn að bíða og bursta.

kveðja,
María Fanney

Comments:
Vá hvað þú ert dugleg að hjóla. Ég er sko ekki einu sinni farinn að prófa að hjóla án hjálparadekkjanna....
kv. Sigurgeir Andri
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?