laugardagur, ágúst 27, 2005
(0) comments (0) comments (0) commentsföstudagur, ágúst 26, 2005
Þriðji skóladagurinn í dag. Það er bæða skemmtilegt og leiðinlegt í skólanum. Við erum byrjuð að skrifa stafi og svo litum við og leirum. Það sem mér finnst t.d mjög leiðinlegt er að kennarinn segir aldrei að stafirnir mínir séu flottir:( Það sem er skemmtilegt er þegar við erum að leira :)
Við fengum öll gula derhúfu í skólnanum í gær og á henni stendur "ég er í 1. bekk" Við eigum að vera með hana fyrstu vikurnar til að stóru krakkarnir og kennararnir geti séð hvar við erum og hjálpað okkur ef við þurfum.
Bertha María vinkona mín hefur komið til mín eftir skóla og við leikið okkur saman bæði úti og inni. Nema í gær þá lékum við bara lítið saman því ég fór í sund með pabba, Helga og Karen Björgu. Svo eftir kvöldmat fórum við að sjá Víking-Íbv spila. Berglind og Karen Sif komu líka. Ég var reyndar svo þreytt að ég sofnaði í smá stund í fanginu á pabba :S
Segi það nóg í bili
kveðja Mæja skólastelpa.
(1) comments

fimmtudagur, ágúst 18, 2005
Sumarið að klárast!!
Sumarið bara að klárast, haustið að koma og ég fer í skólann á mánudaginn. Ég fer reyndar bara til að hitta kennarann og fá yfir það sem á að kaupa og svona. Það verður gaman að byrja í skólanum og komast í rútínuna aftur. En ég er búin að vera gera margt og mikið í sumar.... eða er það ekki? Man nú ekki alveg allt en ég fór allavega í sumarbústað um síðustu helgi. Það var mjög gaman. Gabríel Máni frændi kom með mömmu sinni og pabba. Við lékum okkur heilmikið saman, fórum að veiða með pöbbum okkar, hoppuðum á trambolíni og margt margt fleira. Við settum inn nokkrar myndir frá sumarbústaðarferðinni.
þanga til næst,
Mæja mús.
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
þanga til næst,
Mæja mús.
þriðjudagur, ágúst 16, 2005
Hvað á hann að heita??
Enn er lilli bró ekki búinn að fá nafn. Ef þið eruð með hugmynd hvað strákurinn á að heita þá megið þið endilega koma því á framfæri. Allar hugmyndir verða skoðaðar :)
(4) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
þriðjudagur, ágúst 09, 2005
Ég kann að hjóla!
Jamm og jæja ég kann að hjóla :) Það hefur verið frekar erfitt að læra að hjóla án hjálpardekkjanna en loksins kom það. Ég hef verið að æfa mig svona öðru hvoru en svo bara allt í einu var þetta ekkert mál. Nú hjóla ég hring eftir hring um leiksvæðið með Friðriki Daða vini mínum.
.... en ég er ekki enn farin að missa neina tönn. Ég spurði mömmu um daginn þegar við vorum að bursta hvort ég mætti ekki bara hætta að bursta tennurnar, því eins og allir vita detta tennurnar úr manni ef maður burstar ekki vel. Tillagan var ekki samþykkt þannig að ég verð bara enn að bíða og bursta.
kveðja,
María Fanney

þriðjudagur, ágúst 02, 2005
Ferð í húsdýragarðinn
Um helgina fór ég með mömmu, pabba, Birnu og Snæbirni í húsdýragarðinn. Það var rosa fjör hjá okkur. Við fórum í flest öll tækin og sum oftar en einu sinni. Við skoðuðum auðvitað líka dýrin og fórum inn í vísindatjaldið. Hérna eru nokkrar myndir af okkur öllum... lilli bró var með okkur líka en hann svaf mest allan tímann :)
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments
(0) comments