fimmtudagur, ágúst 18, 2005
Sumarið að klárast!!
Sumarið bara að klárast, haustið að koma og ég fer í skólann á mánudaginn. Ég fer reyndar bara til að hitta kennarann og fá yfir það sem á að kaupa og svona. Það verður gaman að byrja í skólanum og komast í rútínuna aftur. En ég er búin að vera gera margt og mikið í sumar.... eða er það ekki? Man nú ekki alveg allt en ég fór allavega í sumarbústað um síðustu helgi. Það var mjög gaman. Gabríel Máni frændi kom með mömmu sinni og pabba. Við lékum okkur heilmikið saman, fórum að veiða með pöbbum okkar, hoppuðum á trambolíni og margt margt fleira. Við settum inn nokkrar myndir frá sumarbústaðarferðinni.
þanga til næst,
Mæja mús.
þanga til næst,
Mæja mús.
Comments:
Skrifa ummæli