<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Elskulega reiknisbókin mín 

Bara að láta ykkur vita að reiknisbókin er fundinn! Það er stundum þannig þegar maður heldur að það sé búið að leita allstaðar þá er einn staður eftir sem maður fattar ekki að leita á. Við vorum svo vitlausar að leita ekki inn í myndaalbúminu mínu. Hvernig bókinni dat í hug að hanga þar í heila viku vitum við ekki...

Við fengum skemmtilega heimsókn í gær. Fellibylurinn Eadóra kom til okkar. Þetta er ekki alvöru fellibylur heldur bráðum tveggja ára nágranni okkar. Hún talar mjög lítið en það sem hún segir er á útlensku. Það er svo sem allt í lagi að hún tali bara útlensku en það er verra að hún skilur ekki það sem við segjum við hana. Eftir mjög stutta stund var allt það sem var á borðum og hillum komið á gólfið og hellt úr því sem við geymdum í kössum. Þegar sjónvarpið var það eina sem stóð eftir en var samt á góðri leið á gólfið leiddum við Eadóru niður til mömmsunnar sinnar.

Þanga til næst,
yfir og úr :)
mæja mús

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?