<$BlogRSDURL$>

föstudagur, febrúar 03, 2006

Jæja gott fólk... 

Viktor Bjarki er farinn að skríða! Hann byrjaði á því í dag. Hann sat á gólfinu og var að leika og við settum rosa skemmtilegt lag í gang, hann byrjaði að dilla sér með... og bara hreyfðist áfram. Honum fannst þetta rosa sniðug uppgvötun og hélt áfram þvert yfir stofugólfið. Hann s.s fer áfram á rassinum alveg eins og ég gerði. Hann fór í gær í sprautu og var mældur og vigtaður. Hann er alveg að slefa í 11 kíló og er rétt rúmir 73cm. Hann var jafn duglegur og vengjulega þegar hann fékk sprautuna í rassinn grét barasta ekki neitt.

Jæja ég er farin. Er að fara að sækja Sævin og Adam í leikskólann... ég er búin að bíða eftir því í allan dag. Nú verður fjör!!

yfir og út!

Comments:
Vá duglegur! Þú verður bara farinn að hlaupa áður en maður veit af!!! :)
 
Ja sko minn nú verður fjör á bæ. En nú er kominn tími á hitting hjá okkur öllum þetta gengur ekki. Reynum nú að hittast næstu helgi okí jamm bæ í bili.....

Og María hvað er nú að mömmslu þinni að vilja ekki kaupa síma fyrir þig hahah þú ert nú að verða 7 ára ; )
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?