<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, júní 28, 2007

8 ára! 

Þá er stóra stelpan okkar orðin átta ára. Hún átti fínan afmælisdag í gær. Hún fékk fyrst að koma með í skoðun hjá ljósunni og hlusta á hjartsláttinn hjá barninu. Hjartað sló fínan takt, en þegar Mæja var inn í bumbunni þá sló hjartað hennar óreglulega þannig að það þurfti að fylgjast alveg sérstaklega með því.
Hún hlakkar mikið til að vera stórasystir aftur og vonar auðvitað að þetta verði stelpa ;) við getum ekki lofað neinu um það en hún hefur dregið allt til baka um það að skila barninu ef þetta verður strákur. Viktor Bjarki er ekkert allt of skemmtilegur við hana þannig að ég skil svo sem alveg að hún vilji fá eina krúsidúllu sem geltir ekki á hana þegar Mæja er að reyna að vera góð :)

en hafið það gott í góða veðrinu.

Comments:
Til hamingju með 8 ára afmælið :)
Sjáumst hressar um helgina í útilegunni.
Kv. Karen Sif
 
Til hamingju með afmælið um daginn elsku Mæja.

kv. Sigurgeir Andri, Þórný Arna og Gísli Alexander
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?