<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, júní 05, 2007

Viktor Bjarki 2 ára! 

Litli strákurinn okkar er orðinn tveggja ára! Hann er orðinn alveg risastór :) og byrjaður í leikskóla. Það verður erfitt að kveðja krakkana og Hjördísi dagmömmu, Hjördís á fáa sér líka og betri konu er ekki hægt að finna. Hún passaði líka Mæju þegar hún var lítil og við erum búin að panta pláss fyrir krílið. Viktor á eftir að finna sig líka vel í leikskólanum, hann er mikill útistrákur og elskar að moka og renna og sparka í bolta:)) Hann elskar alla bolta, um leið og hann vaknar er hann búinn að finna sér bolta til að sparka í eða henda eða rúla sér á. Hann er ægilegur stríðnispúki ( eins og pabbi sinn) en það er helst Mæja sem verður fyrir því. Enda lang skemmtilegast að stríða þeim sem orga hátt..hihih
Viktor er ekki farinn að tala mikið, en það kemur vonandi núna þegar það fer að reyna meira á hann, við vonum að hann verði allavega fljótari að ná þessu en mamma sín sem byrjaði að tala 5 ára:)
Mæja fer alveg að klára skólann og þá taka leikjanámskeið við, eða þanga til pabbi hennar fer í sumarfrí í júlí. Vonandi verður sumarið gott í Reykjavíkinni því við höfum ekkert planað að fara út fyrir það svæði, þó værir mjög gaman ef einhver vill bjóða okkur í sumarbústað ;) eða koma með okkur í útileigu.
en annars eru allir kátir, barnið í bumbunni stækkar og stækkar og maginn og allt hitt hjá mömmu stækkar í samræmi við það:) 8. ágúst er dagurinn sem það ætlar að láta sjá sig... við vonum að við þurfum ekki að bíða mikið lengur en það.
Hafið það gott öllsömul!

Comments:
Hva meinaru eiginlega.... Ég skildi mömmu ykkar svo vel... líka fyrir 5 ára aldurinn :)hehe

Frábært að Viktor Bjarki skuli vera kominn í leikskólann... hann á eftir að vera fljótur að byrja að tala meira um leið... nú eigið þið eftir að sjá þvílíkan dagamun á honum!
Og bara enn og aftur til hamingju með drenginn!! :) Alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða!!
 
Orðinn tveggja ára, tíminn líður greinilega. Það væri gaman að sá bumbuna á þér Bjarney og sýna þér mína ;)

Bið að heilsa ykkur.
Stína
 
Til hamingju með afmælið Viktor Bjarki :) Það á sko eftir að vera gaman hjá okkur í leikskólanum í vetur ;)
 
Hæ hæ, við erum sko alveg til í útilegu....
Gleymdum sko alveg að hringja á afmælsidaginn en elsku Viktor til hamingju með árin 2 stóri strákur.
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?